|
Saturday, May 21, 2005
Fótbolti, veikindi og fleira og fleira..
Jájá, ég hefði kannski mátt vera duglegri að bogga í vikunni, svona þar sem ég hef ekki haft NEITT betra að gera..
Ég er semsagt lasin heima, var á leiðinni í vinnuna á þriðjudag þegar ég fékk svo brjálaða verki að ég treysti mér ekki einusinni í að keyra mikið lengra, sem betur fer var ég rétt við árbæinn, þannig að leiðin lá beint niðrá heilsugæslu þar sem ég nánast datt inn um dyrnar og bað um lækni, mjög dramantískt að sjálfsögðu (búin að sjá of marga spítalaþætti ;)) Þar voru tekin einhver sýni og mér tilkynnt að þetta væru nýrun, enn einusinni.. gaman gaman.. allavega, pabbi þurfti að sækja mig útá heilsugæslu og mér var gefið fullt af læknadópi og látin fara heim að sofa.. Það er nokkurnvegin það sem ég er búin að vera að gera í vikunni..
Fyrir utan það að ég náttla varð að stelast á fótboltaleik á þriðjudaginn, mjög skemmtileg lífsreynsla þar sem ég var algjörlega uppdópuð og stóð varla í lappirnar. En leikurinn var mjög góður engu að síður. Þetta var semsagt Fylkir - KR, leikurinn fór 1-2, mjög ósanngjarn sigur kringa en góður leikur engu að síður, strákarnir mínir áttu leikinn algjörlega, voru með boltann meiri hluta leiksins og algjörlega stjórnuðu þessu.. En samt fór sem fór og nú er bara að bíða spennt eftir næsta leik..
Ég er svona að gera mér einhverjar vonir um að komast á leikinn sem er á morgun, veit ekki hversu vel það á eftir að fara.. Læknirinn lofaði því að ef að mér liði orðið sæmilega í dag þá mætti ég fara á leikinn á morgun og vinnu á þriðjudag :D *jeijjj* ég er farin að sakna vinnunar minnar all svakalega, hversu sorglegt er það... En ég er bara ekki týpan í að hanga heima og gera ekki neitt.. það verður allavega þreytt mjög fljótlega.. Ég kemst allavega ekki í vinnu á mánudag því þá er ég að fara í einhverjar enn frekari rannsóknir og eitthvað, gá hvort það er eitthvað hægt að gera eða hvort ég á bara að dópa mig upp þar til að þetta hverfur.. Ég allavega geri mér miklar vonir um að komast í vinnu á þriðjudaginn, svona áður en ég fer endanlega á geði.
Það eina góða sem ég hef haft uppúr þessum veikindum er það að ég er búin að fá að horfa á allar gelgjumyndirnar sem að Tóti minn vill ekki horfa á, Grease, Clueless og Footlose hafa til dæmis fengið að njóta sín mjög vel :D
En jæja, nú er ég að hugsa um að annaðhvort leggjast niður í lasyboyinn og sofa.. Eða taka til.. ákvörðun verður tekin fljótlega.. En allavega.. later ppl..
Tataa...
-Birna Dís
Posted at 14:50 by birnadis
Permalink
Thursday, May 12, 2005
Einhverntíman var mér sagt að tilgangur lífsins væri að sjá um börnin sín og vera til staðar fyrir þau..
Einhvernveginn hefur það fest hjá mér og ég farið að trúa því.
Svo fór ég allt í einu að spá í þessu um daginn, hvað ef maður er nú í þeirri aðstöðu að eiga aldrei eftir að eignast börn.. Hvað á maður þá að gera? Hefur maður eitthvað að stefna að? Er hægt að snúa þessu uppí að sjá um einhvern annan? Annara manna börn kannski? Ég held bara að það sé ekki hægt.. Þannig að, hér með óska ég eftir nýjum tilgang í lífinu. Einhverju raunsæu en samt þess virði að lifa fyrir. Einhver með hugmyndir?
Annars veit ég nú ekki hvað ég hef að segja ykkur, nema kannski að fótboltinn byrjar í næstu viku, fyrsti leikur Fylkis er Fylkir-KR á þriðjudaginn, get ekki beðið . Kannski maður bara lifi fyrir það ;)
-Birna Dís
Posted at 22:20 by birnadis
Permalink
Wednesday, April 13, 2005
Jeijjj, ég á afmæli í dag.. Finnst alltaf jafn æðislegt að eiga afmæli :)
Hafiði samt pælt í því hvað 19 ára afmælið er ómerkilegt miðað við árin í kring...
17 = Bílpróf
18 = sjálfráða/Fjárráða
19 = ekkert
20 = Má drekka
Svekk..
En jæja, vinna vinna.. later ppl
ps. fjárframlögum í tilefni dagsins er tekið við á reikning 113-26-965 og afmælisgjafir verða mótteknar í Hátækni Ármúla 26 til klukkan 18:00 í dag, eftir það á heimili mínu Orrahólum 5 :D
Posted at 10:20 by birnadis
Permalink
Thursday, April 07, 2005
- Ókeypis leikskóla? Gott að þjóðin létti undir með ungum foreldrum? Slæmt að barnlaust fólk sé að borga með sköttum leikskóla fyrir annara börn?
- Fréttastjóra málið? Að fólk eigi að sætta sig við þann yfirmann sem þeim er skipaður? Að fólk eigi að mótmæla ráðningum sem því finnst ekki rétt staðið að?
- Bobby Fisher? Gott að Íslendingar séu að bjóða Bandaríkjunum birgin? Slæmt að eyða tíma og peningum í að fá mann alls óskildan landinu hingað þegar það er verið að vísa fólki úr landi í tíma og ótíma og íslenskum strák er haldið í stofufangelsi í Bandaríkjunum og ekkert í því gert?
- Sölu símans? Selja ekki selja.. selja grunnetið með ekki selja það með... ?
- Sölu á bjór og léttvíni í matvörubúðum? Myndi það auka á drykkju ungmenna, eða jafnvel drykkju almennt? Myndi það bæta vínmenningu landans?
- Virkjanir? Viljum við meira af þessu? Viljum við halda áfram að laða að túrista með óspjallaðri náttúru (því sem er eftir af henni) eða viljum við græða peninga með því að nota færa okkur þær auðlindir sem okkur voru gefnar?
- Aukinn opnunartíma verslana? Gott að geta verslað hvenær sem er (líka á páskadag og föstudaginn langa) og gott fyrir skólafólk sem safnar upp peningum í fríinu? Slæmt fyrir fólk sem er að vinna alla daga og getur ekki einusinni fengið frí þessa fáu daga á ári sem eru merktir rauðir á dagatalinu? Erum við of góð til að versla 2 daga fram í tímann og gefa fólki sitt frí?
- Íslensk hegningarlög? Er það allt í lagi að kona fái 14 mánuði fyrir að stela 6þús kalli og vera með 0,07 grömm af kókaíni á sér meðan barnaníðingar og kynferðisafbrotamenn eru að fá svipaða dóma? Er hægt að bera þessi brot saman? Td. var maður dæmdur um daginn í 6 mánuði fyrir tvær mjög alvarlegar líkamsárásir. Er ekki eitthvað bogið í þessari mynd?
- Gerfiþarfir? Eru íslendingar að missa sig í þessu vegna þess að forfeðurnir létu sér nægja hluti sem uppfylltu ekki einusinni grunnþarfir þeirra? Erum við að reyna að bæta það upp með því að fylla heimili okkar af rafmagnstækjum sem "auka lífsgæðin" og skuldsetja okkur upp fyrir haus? Hvar endar þetta?
- Þennan kulda!!!!! Var ekki komið vor um daginn?? :p
óver end át..
-Birna Dís
Posted at 15:00 by birnadis
Permalink
Tuesday, April 05, 2005
...veitum öðrum af og til,
ofurlítin skilning þeirra ágöllum í vil.
Ofurlitla hamingju látum eftir okkur sjá,
og er við göngum lífsins veg við launin munum fá...
Jæja, þið segið það.. Langt síðan maður hefur tjáð sig eitthvað hérna,
það sem er helst í fréttum er það að ég fór í Byko um helgina.. sem væri ekki frásögu færandi nema vegna þess að þar fékk ég verstu þjónustu sem ég hefði nokkurntíman getað ímyndað mér.. Þetta var algjörlega ótrúlegt.
.
Jæja, ferðinni var allavega heitið í Byko með mömmu þar sem við ætluðum að kaupa spegill inn á baðherbergið hjá mér. Pabbi ákvað að gefa mér spegil í afmælisgjöf..
Við mættum í Byko og tókum stefnuna beint inní baðherbergisdeildina þar sem að spegillinn (minn) stóð uppi á vegg.. Eftir mikla leit fann ég sölumann.. sölumaðurinn bað okkur að hinkra aðeins og eyddi svo 10mín í að spjalla í gemsann sinn (greinilega einkasamtal) og laga á sér hárið fyrir framan einn spegilinn... Svo tvísteig hann þarna fyrir framan spegilinn í smá tíma og þá loksins komst hann til lífs... Skrifaði vörunúmerið niður á miða og sagði okkur að fara bara og borga þetta á kassanum og hann ætlaði að fara niður í vöruafgreiðslu og finna þetta til.. OK.. við orðnar nett pirraðar á þessum gaur en samt, hann virtist allavega hafa náð þessu á endanum og við þökkuðum fyrir og kvöddum..
Þá lá leiðin á kassan þar sem við lentum á einni hræðilegustu afgreiðslumanneskju sem ég hef lent á.. Ég reyndar kannast vel við þessa manneskju og bjóst svosem ekki við því að hún réði við þetta starf þar sem að það eina sem þarf eru smá hæfileikar í mannlegum samskiptum.. Þar sem að það er ekki sérlega hlýtt á milli þessarar manneskju og mín ákvað ég að halda mig bara til hliðar og lét mömmu bara sjá um þetta.. Eftir þá afgreiðslu fékk ég í fyrsta skipti að heyra mömmu mína segja að henni langaði til að kýla einhvern. Hef aldrei séð hana jafn hneikslaða eins og á stælunum og leiðindunum í stelpunni á kassanum..
Þarna vorum við nú bara orðnar hálf uppgefnar og ætluðum bara að flýta okkur að ná í spegilinn og svo heim eftir þessa svaðilför..
Nei nei.. þá fórum við niður í vöruafgreiðslu og eftirfarandi samtal átti sér stað:
Við: Góðan dag, við áttum að ná í hingað þennan spegil (réttum honum miðan)
Lagerstrákur: Þetta er ekki til
Við: hvað meinarðu er þetta ekki til, við vorum að borga fyrir þetta 23þús krónur
Lagerstrákur: Já þetta er bara ekki til, ég get ekkert gert í því
Við: Strákurinn ætlaði að koma niður og finna þetta til.
Lagerstrákur: Hingað hefur enginn komið að leita að þessu.
Við: Og hvað eigum við þá að gera
Lagerstrákur: Það er ekki mitt vandamál.
Við: Bíddu, eigum við bara að fara og vera búin að tapa 23þús krónum?
Lagerstrákur: Þið getið reynt að koma á morgun og fá endurgreitt, það kemur mér ekkert við..
og við erum búin að loka.
Svo byrjaði hann að loka hurðinni (svona bílskúrshurð) og við máttum bara gjöra svo vel að hlaupa út...
Ég get svo svarið það að við bara stóðum þarna á planinu í smá stund algjörlega agndofa.. Höfðum aldrei lent í öðru eins..
En pabbi var svo reyndar settur í málin og hundskammaði þarna einhvern yfirmann sem að lofaði bót og betrun og ég ætti nú að fá spegil á endanum.. Með góðum afslætti..
Annars er orðið svo ofboðslega fínt hjá mér að ég er alveg í kasti, loksins orðið heimilislegt hjá mér :) *jeijj*
Ekki má heldur seinna vera ef ég á að geta boðið fólki heim á afmælinu mínu en það eru nú bara 8 dagar í það :D
En nú er víst kominn tími til að vinna,
ta taa..
-Birna Dís
Posted at 10:43 by birnadis
Permalink
Monday, March 28, 2005
En hvað ég er glöð að þessir páskar eru yfirstaðnir.. Á morgun tekur vinnan við og allt fer á rétt ról. *getekki beðið*
Fórum uppí bústað um páskana, þar voru mamma og pabbi, bróðir minn og systir. Svo tókum við krakkana hans Tóta með. Það var lesið, borðað, spilað og farið í pottinn. Nú erum við búin að skila krökkunum og erum að fara í matarboð til tengdó. Eftir það er þessu lokið *hjúff* og á morgun getur maður bara mætt í vinnu eins og venjulegt fólk. Vá hvað ég þoli ekki helgar, hvað þá einhver svona auka frí. jukk..
Við erum búin að pússa og mála baðherbergið, nú er bara eftir að koma sér í byko og kaupa málningu með auka herði til að fara yfir með. Það er víst betra þegar um baðherbergi er að ræða.
Komið fínt af rausi í bili, þarf víst að fara og finna til spariföt og laga mig til svo ég sé boðleg í matarboð, eða allavega nær því.
Posted at 16:31 by birnadis
Permalink
Friday, March 11, 2005
Jájá, veit að það er hrikalega langt síðan ég hef bloggað. Það er bara mest lítið að gerast. Ég er búin að vera lasin. Þoli ekki að vera lasin, fæ svo mikið samviskubit yfir að komast ekki í vinnu :/
Og ég á kettling :D Jeijjj :D Fékk lítinn kettling sem heitir Kisi :) Hrikalega sætur og ofboðslega góður. Eina vandamálið er það að konan sem átti hann gaf honum alltaf bara matinn sem hún var að borða, kjöt, fisk, sardínur og svoleiðis.. Þannig það er smá átak þessa dagana að venja hann á þurrmatinn og ennþá erfiðara að fá að borða matinn sinn í friði. En hann hlýtur að ná því á endanum að hann fær ekki neitt, það endar með því að hann gefist upp á því að vera alltaf hent í burtu.
Talandi um átak, ég er byrjuð á einhverju átaksnámskeiði hjá Hreyfingu. Elísa dró mig með og ég verð bara að segja að ég sé ekki eftir því. Reyndar bara einn tími búinn en mér líst ekkert smá vel á þetta. Er líka búin að minnka allt nammiát og kókdrykkju og sona, ætla að reyna að græða eitthvað á þessu :p Sjá hvort maður kemst í form :D Steig á vigtina niðrí Hreyfingu um daginn og fékk alveg sjokk.. Það verður nú að gera eitthvað í þessu. Orðin algjört hlass. Þannig að nú verður farið í algjört átak, bæði í mataræði og hreyfingu. Myndi helst vilja losna við 10 kíló, held samt að ég myndi sætta mig við 5 til að byrja með (alltaf verið að röfla um raunhæf markmið)
Úff, úrslit í Idol í kvöld. Og ég hef bara ekki hugmynd um með hverjum ég held. Ég er eiginlega bara ekkert spennt lengur afþví ég held alveg jafn mikið með þeim báðum. Var ekkert smá sátt við síðasta þátt. Það eru akkurat þær tvær sem eiga að vera eftir en nú er bara spurning hvor er búin að safna sér fleiri aðdáendum á meðan á þessu stóð. Ég hef undanfarið verið að senda eitt sms fyrir hvora þeirra. Svo ég slepp við að kjósa í kvöld því atkvæðin mín myndu bara mínusa hvort annað út.
Hmm, ég er komin með nýjan ísskáp og nýja sófa. Ísskápurinn er frábær, sófarnir eru ógeðslegir eins og er, en ég ætla að sauma utanum þá nýtt áklæði og sona, þá verða þeir fínir (vona ég) :)
En jæja, ég held ég fari að koma mér í vinnuna. Er að drepast úr harðsperrum í magavöðvunum.. Ég hélt þeir væru horfnir... En annað kom í ljós á miðvikudaginn.
Tataa ppl :)
-Birna Dís
Posted at 08:18 by birnadis
Permalink
Saturday, February 19, 2005
Kíkið á þetta, kannski (það er nú alveg á hreinu reyndar) er ég bara nörd, en ég hafði mjög gaman af að skoða þetta :) Allskonar staðreyndir um Ísland. Reyndar pínu gamlar sumar af þessum upplýsingum, en samt :)
-The birnadis
Posted at 11:52 by birnadis
Permalink
Friday, February 18, 2005
Enn einn föstudagurinn...
Þetta er ótrúlegt, um leið og einn föstudagur klárast þá kemur annar. Ekki veit ég hvað verður um tímann sem á að vera þarna á milli. En ég allavega virðist ekki taka þátt í honum.
Ég vil byrja þetta blogg á því að leiðrétta misskilning af minni hálfu sem kom fram hérna um daginn, þannig er að það eru engir KR-ingar að vinna hérna með mér. Þetta var helber misskilningur sem kom fram vegna þess að hann Magnús fór að þykjast vera kringur þegar hann hallast í raun að Víking (ef mig misminnir ekki)
Annars er allt að verða vitlaust hérna í vinnunni hjá mér þar sem að hér eru breytingar í fullum gangi og smiðir að þvælast hér útum allt með mikilli fyrirferð. En þetta borgar sig að lokum þar sem þetta á eftir að verða flottasti vinnustaður í bænum að framkvæmdum loknum.
Af annari vinnu er það að frétta að frá síðustubloggfærslu hef ég byrjað í aukavinnu og hætt í henni aftur :) *góð* ég ákvað að prufa þetta, en komst að þeirri niðurstöðu að mér leist ekkert á þetta. Hugsa að ég fari að vinna fyrir pabba í aukavinnu. Alltaf best að vinna fyrir pabba ;)
Jæja, þá held ég að ég hafi ekki mikið fleira til að segja frá. Helgin verður álíka óspennandi og aðrar, hanga heima og gera nákvæmlega ekki neitt. Þó við ætlum reyndar að kíkja til tengdó í kvöld, borða pizzu og horfa á idol :) Það er eiginlega komið uppí hefð, sem er ekkert nema gott :)
Úr fótboltaheiminum er það að frétta að það er einhver Svíi í reynslu hjá Fylki.. Hvernig lýst fólki á þá.. Já sei sei, ég veit eiginlega ekki hvað mér finnst um það. Er ekki vel við að fá útlendinga í liðið, en get samt ekki fundið eina einustu haldbæru útskýringu á því afhverju sú skoðun stafar. Sterkur leikmaður sem gæti gert mikið fyrir liðið, á reyndar einhverja svakalega meiðslasögu að baki, en kannski batnar honum af íslensku lofti. Gefum stráknum bara lýsi.. Þetta hlýtur að blessast allt saman. Trúi ekki öðru.
Vil ég einnig óska FH til hamingju með sigur á Reykjavíkurmótinu, eins hallærislegt og þetta var nú allt saman :) Gestaliðið vann, Valsarar eru Reykjavíkurmeistarar þrátt fyrir að hafa tapað úrslitaleiknum. Æjjh.. svona getur þetta verið. Segjum bara að FHingar séu "stórhöfuðborgarsvæðismeistarar" allavega finnst mér hallærislegt að vera að láta Valsara hafa einhvern bikar fyrir þetta. En sitt sýnist eflaust hverjum um það.
Samt er manni nú hálf hlýtt til Valsara eftir að stórmennið Kjartan Sturluson gekk til liðs við þá. Ég get reyndar ekki ákveðið hvort ég vil hann aftur í Fylki. Auðvitað vill maður hafa Kjartan í réttu liði, en hinsvegar er Bjarni búinn að sanna sig sem frábæran markmann, Kjartan gaf honum eftir sitt sæti í liðinu og það væri eiginlega bara ósanngjarnt ef að hann færi að taka það af honum aftur. Ekki það að Bjarni væri að sjálfsögðu ekki lengi að fá tilboð um aðrar stöður, sé hann bara ekki fyrir mér annarstaðar en í Fylki :)
Aðrar hugleiðingar þessa dagana fara út í allt aðra sálma. Það er þetta fár sem DV (ásamt öðrum fjölmiðlum landsins) er búið að vera að draga upp um kynlíf unglinga (og barna) maður veit bara ekki hvað er að gerast. Ég bara eiginlega neita að trúa þessu, að 13 ára börn , ekki bara stundi kynlíf. Heldur neyðist til að stunda kynlíf sem þau hafa ekki áhuga á að stunda, jafnvel endaþarmsmök og annað í grófari kanntinum. Mér finnst þetta bara ótrúlegt. Og það í orðsins fyllstu merkingu. Ég trúi ekki að þetta sé eins algengt og DV er að blása upp. Ekki er það langt síðan ég var á þessum aldri og ég hef aldrei heyrt minnst á þetta. Auðvitað getur þetta verið að gerast einhverstaðar í einangruðum tilvikum. En að annarhver 13 ára unglingur sé orðin virkur í kynlífi. Því bara trúi ég ekki. Gæti verið barnalegt viðhorf, en það er mitt viðhorf. Það er hræðilegt að þetta sé að gerast, en þetta er ekki jafn algengt og verið er að sannfæra þjóðina um. Mín skoðun og ekkert annað.
En.. ég held að þetta sé nú bara komið gott í dag, eigiði góða helgi..
yfir og út :)
-The birnadis
Posted at 12:03 by birnadis
Permalink
Sunday, February 13, 2005
Greindarvísitala.. hmmmm....
Eins og svo oft áður var ég að taka test á netinu, í þetta skipti var það greindarvísitölupróf (veit, ætti að halda mig frá svoleiðis dóti) en allavega, ég tók það og niðurstöðurnar voru þessar:
Your Intellectual Type is Visual Mathematician. This means you are gifted at spotting patterns — both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction — especially in the workplace. And that's just some of what we know about you from your test results.
og greindarvísitalan var 129.. ég veit nú ekki hvort þetta er gott eða slæmt... Ekki er ég það klár þannig ég get ekki ímyndað mér að þetta sé gott, þó mér skiljist að meðaltal sé 100.. Trúi því samt ekki, hef aldrei þekkt neinn sem hefur fengið undir 100 á svona prófum. Reyndar á maður aldrei að trúa svona dóti á netinu. En nú vitiði það, samkvæmt prófi á netinu er greindarvísitalan mín 129, þið megið meta það sjálf hvort það er gott eða slæmt :p
-The smart birnadis
Posted at 20:13 by birnadis
Permalink
|
|
|