Friday, February 11, 2005
Ég auglýsi hér með eftir kvöld og helgarvinnu, helst frá 18:30 og frameftir á virkum dögum og allar helgar eins lengi og mögulegt er. Ef einhver veit um laust starf með þennan vinnutíma endilega látið mig vita :)
-The birnadis
Posted at 17:39 by
birnadis
Permalink
Kominn enn einn föstudagurinn. Ótrúlegt hvað þeir þurfa alltaf að flýta sér. Vildi helst óska þess að það væru engir föstudagar, eða öllu heldur engar helgar. Föstudagar væru svosem ágætir ef það væru engar helgar. Pæla í að fara að finna mér helgarvinnu.
well.. vinna vinna..
-The birnadis
Posted at 12:47 by
birnadis
Permalink
Thursday, February 10, 2005
Fastelavn.. er mit navn..
Jæja, þá er bollu-, sprengi-, öskudegi lokið. Það var svo gaman í vinnunni minni í gær :D fékk að gefa krökkum nammi skoða allskonar skemmtilega búninga, spjalla við krakka og hlusta á þau syngja :D Skemmti mér ekkert smá vel :) Hinsvegar finnst mér vanta eitthvað upp á hugmyndaauðgi íslenskra barna þegar kemur að lagavali. Það var annaðhvort "Krummi krunkar úti" eða "Það var einusinni api" Mætti laga þetta fyrir næsta öskudag :p
Ég er farin að hlakka all svakalega til sumarsins. Þó að veturinn sé nú ágætur þá er þetta alveg komið gott af snjó og slabbi. Svo er náttla fótboltinn í gangi á sumrin og ég er farin að hlakka obbosslega til þess að komast á leiki aftur. Farin að sakna þessa. Þó má ekki gleyma Reykjavíkurmótinu sem er í fullum gangi og
mínir menn eru að sjálfsögðu að standa sig algjörlega frábærlega þar :) Ekki það að það komi mikið á óvart :D Ég er hinsvegar farin að verða fyrir miklum vonbrigðum með minn nýja
vinnustað þar sem það er farið að bera á fólki hér og þar sem virðist hallast að
hinu illa og ég vil nú helst ekki hafa mikið af svoleiðis liði í kringum mig..
Annars er nú lítið að segja frá mínu persónulega lífi.. bara vinn og sef ;)
En jæja, farin að vinna..
Ta taa,
-The birnadis
Posted at 13:54 by
birnadis
Permalink
Sunday, February 06, 2005
Framvegis skal ég hafa bloggið mitt með íslenskum stöfum þar sem snillingnum kærastanum mínum datt í hug að ég gæti notað þá ef ég blogga í gegnum internet explorer og það er rétt.. Verst hvað mér finnst mikið betra að nota mozilla.. en allavega :)
Posted at 19:42 by
birnadis
Permalink
Ég vil tileinka þessa bloggfæslu tveimur manneskjum sem ekki eru lengur med okkur.. Árna Jónssyni afa mínum sem lést þennan dag fyrir fimm árum síðan og Kristbjörgu Guðmundsdóttur, en hún var amma hans Róberts míns og lést í nótt.
Ég varð aldrei þess heiðurs aðnjótandi að hitta Kristbjörgu, en hef heyrt mikið um hana frá Róberti og veit ad þar var sterk og góð kona á ferð. Ég votta Róberti alla mína samúð og vona ad hann leyfi þakklætinu fyrir að hafa þekkt hana, yfirgnæfa sorgina yfir því að hafa misst hana. Þannig komst ég yfir sorgina þegar afi fór frá okkur.
Árni afi minn var besti maður sem ég hef þekkt. Hann var kennari i bifvélavirkjun, fyrst við Iðnskólann í Reykjavík og síðar vid Borgarholtsskóla. Ég get ekki ímyndað mér betri kennara, sterkur virðulegur maður sem allir báru virðingu fyrir en samt svo yndislega blíður og alltaf fann madur fyrir öryggi í kringum hann. Ég sakna hans svo einstaklega mikid þessa dagana. Var við brúðkaup hjá frænda mínum í gær og eins og oft vill vera í brúðkaupum var mikið rifjað upp frá fyrri tímum og að sjálfsögðu kom afi oft við sögu. Það vakti upp söknuð og minningar, sem eru nú alltaf til staðar en koma ekki jafn oft upp á yfirborðið nú og áður.
Þau fóru á svipaðan hátt þau Kristbjörg og Árni, skyndileg veikindi sem stóðu stutt yfir og skildu eftir sig auðan stað í hjarta margra. Afi minn fékk krabbamein, lést tveim vikum eftir að hann var greindur.. Amma hans Róberts fékk heilahimnubólgu sem hún hefði eflaust komist yfir, þar til kom í ljós ad blætt hefði inn á heilann á henni og ekki mikið hægt að gera fyrir hana þá.
Bæði lágu þau meðvitindalaus viku fyrir andlát sitt og Róbert hefur eflaust fundið fyrir sömu hjálparvana tilfinningunni og ég gerði.. Að sitja vid hlið þeirra, tala vid þau en geta ekkert gert til að fá þau aftur til meðvitundar.. Þá uppgötvar madur á ógnvænlegan hátt hvað maðurinn er lítilsmáttugur stundum.. Sama hvað maður vill geta gert allt gott aftur, stundum verður maður bara að sætta sig við að það er ekkert sem madðr getur gert, það er eitthvað æðra sem hefur tekið yfir stjórnvölin..
Ég ætla ekki ad hafa þetta lengra í bili. Hvíli þau í friði.
Með söknuði og þakklæti,
-Birna Dís
Posted at 19:17 by
birnadis
Permalink
Thursday, February 03, 2005
Til hamingju með daginn Verzlingar
Já, nemendamót Verzlunarskóla Íslands er í dag og verður eflaust frábært eins og venjulega.. Get ekki neitað því að á þessum degi sakna ég Verzló.. En ég vil allavega óska þeim til hamingju með daginn og vona að allir skemmti sér vel og fallega :)
Annars er nú ekki mikið af mér að frétta, ennþá nokkuð hamingjusöm með vinnuna mína, peningamálin eru ennþá í klessu og ég er ekki sérlega sátt við 10-11.. En þetta lagast allt.
Mér tókst að slasa mig, sem er svosem ekkert nýtt nema það að þetta var á allra heimskulegasta máta, skar framan af puttanum á mér með ostaskera.. idjot...
Flensan herjar enn á landsmenn, mamma er lasin heima greyið ásamt fleirum..
Ég er að fara í brúðkaup á laugardaginn :D Jeijj :)
Tóti og Inga loksins að fara að gifta sig og ef ég þekki þau rétt þá verður þetta eitt flottasta brúðkaup sem ég hef farið í. Veislan verður svo í Iðnó og verður örugglega ekki síðri. Verst hvað ég grenja alltaf mikið í brúðkaupum ;) Ekki veit ég afhverju samt, bara of fallegt fyrir mig ;) Eða kannski er maður bara að væla yfir að vera ekki sjálfur að gifta sig.. mahr veit aldrei, ég á allavega kall núna þannig maður ætti ekki að verða alveg jafn einmana ;)
En jæja, vinna vinna ;) Gá hvort maður finnur sér ekki eitthvað að gera ;)
Ta taa...
-The birnadis
Posted at 10:07 by
birnadis
Permalink
Thursday, January 27, 2005
Í vinnunni get ég bloggað með íslenskum stöfum.. sem er ekki verra :) Það er ekkert að gera hérna í augnablikinu. Sæli er heima afþví að litli strákurinn hans er lasinn og ég er ein í móttökunni.. Það vill enginn vera hjá mér *sniff*
En ég verð þá bara einmanna hérna og fikta í blogginu mínu..
Ég fékk geggjaðan síma lánaðan í gær, fæ að hafa hann til að fikta í honum og læra á hann. Ekkert smá gaman :) Eins og lítið barn með nýtt dót ;)
Annars er helsta áhyggjuefni dagsins hvort ég kemst heim og aftur í vinnuna á morgun á bensíninu sem er á bílnum. Hann er búinn að vera í viku á ljósinu.. Veit ekki hvort hann hefur þetta, en það er vonandi. Tóti fær útborgað á morgun svo ég ætti að geta fyllt hann þá :)
Planið fyrir helgina er mest lítið, tökum strákana líklega frá laugardegi til sunnudags, mamma og pabbi ætla að flytja skrifstofuna um helgina og ég bauð fram hjálp okkar í það. Þó ég hugsi að það sé nú aðallega spurning um Tóta til að bera einhverja kassa, þó ég sé svakalegur kraftajötunn þá er ég ekkert sérlega góð í því ;) Reyndar held ég að það sé ekki einusinni ákveðið hvert blessuð skrifstofan er að flytja, þannig að nýtt heimilisfang Uppeldis ehf. kemur líklega ekkert í ljós fyrr en í flutningunum. Þetta er eitthvað svona suprise hjá pabba, svo sniðugur sá gamli.
Annars er ég nú bara sármóðguð, ég hef komist að því að fólkið í vinnunni minni sér enga ástæðu til að fagna komu minni til fyrirtækisins! Hvað er málið með það, sko fólk fær kveðjupartý.. mér finnst að ég ætti að fá svona "velkomin partý" eruði ekki sammála? Mér skilst allavega að Andri sé í skemmtinefnd og þegar ég sagði honum að ég vildi partý þá var mér tilkynnt að ég þyrfti að bjóða og mætti alveg ráða hvenær það væri. Svo lengi sem ég biði öllu stóðinu bjór. Ég er nú ekkert sátt við það :(
Svo er Ófeigur að röfla um gítarkennslu, kannski mahr bjóði honum í heimsókn og láti tóta kenna honum.. Gott er að eiga kláran kall ;)
En jæja, farin að vinna.. Ætti að finna eitthvað að gera fyrst að sæli er ekki hérna.
Later ppl,
-The birnadis
Posted at 09:51 by
birnadis
Permalink
Tuesday, January 25, 2005
Nyja vinnan min er frabaer!! eg er ekkert sma happy med thetta :D Geggjad godur morall, skemmtileg vinna. Hrikalega hresst folk og allt bara frabaert :) Kom mer ekkert sma a ovart, bjost vid einhverju hrikalega alvarlegu andrumslofti og sona, en nei nei, allir bara alveg hrikalega chilladir og mer var tekid ekkert sma vel :) Mikid ofbodslega er lifid gott vid mig thessa dagana :D
En eg hef svosem ekkert annad ad segja, bara buin ad vera i thessari frabaeru vinnu i allan dag og for svo til mommu og thvodi thvott og horfdi a mest svekkjandi handboltaleik ever en eg vil ekki tja mig um hann. Er enntha of svekkt..
Well.. later ppl :)
-The birnadis
Posted at 21:42 by
birnadis
Permalink
Monday, January 24, 2005
Eg er ad fara til Mallorca!!!!
Eg er lika ad fara til Mallorca, ligga ligga la!!! Jamm, foreldrar minir og afi hafa akvedid ad bjoda okkur skotuhjuunum til Mallorca i viku i sumar, fra 10-17 agust :D Eg er ekkert sma happy :) Verdum i studioi a
geggjudu hoteli a Playa de Palma, sem er eins og nafnid gefur ad kynna, rett hja Palma, hofudborg Mallorca. Og tharna verdum vid semsagt i viku, borgad fyrir okkur baedi hotel og flug :D GEGGJAD!!!!
Annars er eg bara ad fara ad byrja i nyju vinnunni minni a morgun, var ad ljuka minni sidustu vakt hja 10-11 :)
Hmm ja, thid tharna uti sem erud ad nota blogdrive, hafidi lent i einhverjum vandraedum med islensku stafina? skilettekki..
anyways... later ppl
solarkvedja,
-The birnadis
Posted at 21:36 by
birnadis
Permalink
Tuesday, January 18, 2005
Bloggid mitt vill ekki syna islenska stafi nema med einhverju veseni!! Thessvegna er eg ekkert buin ad skrifa i ar og öld, buin ad vera ad reyna ad laga thetta. En thar sem eg nenni thvi ekki lengur tha skrifa eg bara svona :)
Eg er komin med nyja vinnu!!!!!! :D :D :D jeijjjjj.. laus ur 10-11!!!!! I byrjun næstu viku verd eg farin ad vinna hja Hàtækni :) Svara i sima, vera i bud, vesenast med einhverjar pantanir og svona.. EKTA EG!!! hlakka svo til, hlakka svo til , hlakka svo til!!!
Hmm.. Annars hef eg nu ekki mikid ad segja.. Finnst thetta svosem alveg nogu merkilegt ;)
Ju, ef thid viljid sja thad hallærislegasta i heimi (thid sem erud ekki buin ad skoda thetta) farid a kallarnir.is þetta er samansafn af vonlausustu gaurum ever, algjor snilld ad hlæja ad thessu!!
Annars er eg bara mjög glod og satt vid nytt ar, virdist ætla ad verda hid besta ar. Nu er verid ad skoda Mallorcaferd i sumar, ætlum kannski ad kikja ut i viku (jafnvel 2) med fjolskyldunni minni. Gæti verid gaman, serstaklega thar sem eg hef farid a thetta hotel adur og thad er ÆDISLEGT!!
En jæja, farin ad telja Tota inn a ad hætta i tolvuleik og fara ad horfa a mynd or some..
Ta taa..
-The birnadis
Posted at 19:15 by
birnadis
Permalink